Þann 10. september næstkomandi verður haldið málþing og kyrrðarstund í tilefni af Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga.
Dagskráin er sem hér segir:
Málþing: Staldraðu við - Stöndum saman gegn sjálfsvígum
Haldið í húsakynnum Decode við Sturlugötu 8, kl.15-17
15.00 Ávarp fundarstjóra
Einar Þór Jónsson, formaður Geðhjálpar
15.10 Aðgerðaráætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi.
Alma Möller, landlæknir, fjallar um stöðu og næstu skref.
15.30 Öryggisvegferð geðsviðs: Nýtt verklag við mat og viðbrögð við sjálfsvígshættu.
Berglind Guðmundsdóttir, yfirsálfræðingur á geðsviði LSH
Kaffi og kleinur.
16.10 Hvernig getur þú veitt syrgjendum umhyggju og stuðning?
Sr. Halldór Reynisson frá Nýrri dögun, stuðningi í sorg.
16.30 Tían, taktu skrefið.
Fulltrúar Útmeða kynna og sýna sýnishorn stuttra
myndbanda úr nýju geðræktarátaki Útmeða fyrir ungt fólk.
16. 50 Samantekt.
17.00 Lok
Kyrrðarstundir
Kyrrðarstundir í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi verða haldnar víða um land.
Dagskrá kyrrðarstundar í Dómkirkjunniþann 10. sept kl.20:
Hrönn Harðardóttir geðhjúkrunarfræðingur leiðir stundina
Sr. Bjarni Karlsson flytur hugvekju
Bubbi Morthens syngur nokkur lög
Sara Óskarsdóttir, aðstandandi, segir frá reynslu sinni af því
að missa móður sína í sjálfsvígi
Kveikt verður á kertum í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi
Ólafur Elíasson organisti flytur hugljúfa tóna í upphafi og lok kyrrðarstundar
Kyrrðarstundir verða einnig haldnar í kirkjum á landsbyggðinni.
Allir eru velkomnir á viðburðina og er aðgangur ókeypis.
Eftirtaldir aðilar standa að dagskránni:
• Embætti landlæknis
• Geðhjálp
• Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
• Landspítalinn – geðsvið
• Minningarsjóður Orra Ómarssonar
• Ný dögun, stuðningur í sorg
• Pieta samtökin
• Rauði krossinn
• Þjóðkirkjan